Ferill 276. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 276 . mál.


1218. Breytingartil

laga

við frv. til l. um breyt. á l. um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 86/1988, sbr. lög nr. 76/1989, 70/1990, 124/1990, 130/1990, 24/1991, 47/1991 og 10.–12. gr. laga nr. 1/1992.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Á árinu 1993 skal starfa þriggja manna nefnd er félagsmálaráðherra skipar er undirbúi samningu laga um greiðsluaðlögun til aðstoðar fólki í verulegum greiðsluerfiðleikum.
    Nefndin skal kanna svipaða löggjöf á Norðurlöndum og afla upplýsinga um reynsluna af henni.