Ferill 172. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 172 . mál.


190. Tillaga til þingsályktunar



um auðlindakönnun í öllum landshlutum.

Flm.: Kristín Ástgeirsdóttir, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir,


Anna Ólafsdóttir Björnsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,


Kristín Einarsdóttir.



     Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta framkvæma auðlindakönnun í öllum landshlutum er taki til allra þeirra þátta er kunna að nýtast til atvinnusköpunar í þágu kvenna jafnt sem karla. Verði könnunin unnin í samstarfi við sérfræðinga, sveitarstjórnir og heimamenn þannig að tryggja megi sem bestan árangur.

Greinargerð.


    Flest bendir til þess að atvinnuleysi sé orðið varanlegt hér á landi þótt það sé enn mun minna en víðast hvar í Evrópu. Greining á þeim sem atvinnulausir eru sýnir að atvinnuleysið nær til æ fleiri starfshópa þótt það sé enn mest meðal ófaglærðs verkafólks. Sú staðreynd hve atvinnuleysis gætir víða í starfsgreinum bendir til þess að almennt sé of mikið framboð á vinnuafli miðað við almennt atvinnuástand þótt það sé reyndar misjafnt eftir landshlutum. Margt veldur því að atvinnuleysi eykst, svo sem almennur samdráttur í þjóðfélaginu, minnkandi afli, erfiðleikar og gjaldþrot fjölda fyrirtækja. Þar við bætist sú staðreynd að samhliða samdrættinum fer vinna minnkandi í samfélagi okkar eins og annars staðar vegna tæknibreytinga sem leiða af sér að færri hendur þarf til að vinna verkin. Hér á landi sjást áhrif tækniþróunar í landbúnaði, sjávarútvegi og iðnaði auk þess sem tölvuvæðing fyrirtækja er farin að skila sér í minni þörf fyrir vinnuafl. Stjórnvöld og atvinnulífið hafa ekki brugðist við þessum breytingum með auknum framlögum til rannsókna, tilrauna og raunhæfra kannana á þeim möguleikum sem hér er að finna til atvinnusköpunar.
    Úti í Evrópu er atvinnuleysið orðið hluti af hagstjórn og stjórnvöld virðast sætta sig við það, trú þeirri hugsjón að markaðurinn eigi að jafna framboð og eftirspurn eftir vinnuafli. Umræður síðustu ára, kröfur verkalýðshreyfingarinnar og aðgerðir stjórnvalda, jafnt hjá ríki sem sveitarfélögum, sýna að hér á landi vilja fæstir sætta sig við varanlegt atvinnuleysi. Gripið hefur verið til átaksverkefna af ýmsu tagi en þau eru tímabundin lausn. Hér þarf stefnumörkun og aðgerðir sem leiða til varanlegs árangurs í atvinnumálum.
    Stjórnvöld hafa mjög einblínt á stóriðju sem allsherjarlausn og varið miklum tíma og fé til að lokka stórfyrirtæki hingað til lands án árangurs. Öðrum atvinnugreinum hefur lítt verið sinnt og afleiðingin er sú að þeirri spurningu er ósvarað hvaða vinnu það unga fólk, sem stöðugt streymir út á vinnumarkaðinn, eigi að sinna, hvað þá þeir sem missa vinnuna. Hér er ekkert það til sem kalla má atvinnustefnu.
    Út um allt land hefur fólk verið að leita fyrir sér með ýmiss konar framleiðslu, einkum konur, enda atvinnuleysi meira í þeirra röðum en meðal karla. Allt gott er um slíkt frumkvæði að segja, en veita þarf meiri stuðning og ráðgjöf. Það má hins vegar ljóst vera að framtak kvennanna dugar hvergi nærri, ekki síst ef horft er til framtíðar. Því þarf að kanna til hlítar alla möguleika til atvinnusköpunar, safna saman þeim hugmyndum og könnunum sem gerðar hafa verið á undanförnum árum, draga fram það sem nýtilegt er og ýta undir frumkvæði fólks um allt land sem oft þekkir best möguleika síns héraðs. Hér þarf að fara fram allsherjarauðlindakönnun sem síðan verði fylgt eftir með áætlunum, ábendingum og opinberum stuðningi. Við slíka auðlindakönnun í allra víðasta skilningi þess orðs þarf ekki síst að huga að atvinnumöguleikum kvenna í ljósi þess að samdrátturinn og atvinnuleysið bitnar harðast á þeim greinum þar sem konur eru fjölmennar.
    Möguleikarnir eru margir. Við þurfum fyrst að spyrja hvernig við getum nýtt betur það sem við eigum og vinnum við í hefðbundnum atvinnugreinum. Ferðaþjónusta hefur verið vaxandi atvinnugrein á undanförnum árum. Þar er mikið verk að vinna í skipulagningu og þjónustu við ferðamenn, einkum í byggð og á sögustöðum, auk þess sem kanna þarf nýja möguleika. Minjagripagerð, ullarvinnsla í hágæðaflokki, heilsulindir, ylrækt, ný skoðun á nýtingu orkulinda, smáiðnaður, athugun á nýtingu jarðefna til efnavinnslu, fullnýting sjávarafla, ónýtt sjávarfang, fiskeldi, samvinna við aðrar þjóðir o.s.frv. Allt kemur þetta til greina við athugun á nýjungum í atvinnulífinu. Tækifærin eru mörg ef menn ganga til verks með opnum huga og með það að leiðarljósi að margt smátt gerir eitt stórt. Það má minna á að í Evrópu og Bandaríkjunum hefur verið mestur vöxtur í smáfyrirtækjum þar sem einstaklingar eða samvinnuhópar eru að vinna úr hugmyndum sínum, framleiða varning eða bjóða upp á einhvers konar þjónustu. Fjölbreytnin er hinn mikli kostur.
    Öldum saman hefur sjávarútvegurinn staðið undir þörfum okkar fyrir þær lífsnauðsynjar sem við höfum þurft að kaupa af öðrum þjóðum, svo og þeim munaði sem við höfum leyft okkur. Við höfum alltaf getað mætt auknum kröfum með því að sækja meiri fisk í sjávardjúpin. Nú erum við komin að ystu mörkum. Við höfum gengið á höfuðstólinn, auðlindir okkar standa ekki lengur undir sívaxandi kröfum til lífsins. Tími er kominn til að hægja á ferðinni og hugsa sinn gang, enda nauðsynlegt vegna framtíðarinnar. Eigi okkur að takast að halda uppi fullri atvinnu, mannsæmandi launum og jöfnuði þegnanna verður eitthvað nýtt að koma til. Þessi tillaga er til þess flutt að menn hefjist handa þegar í stað, kanni alla hugsanlega möguleika til atvinnusköpunar, komi hugmyndum á framfæri, raði í forgangsröð og ýti undir frumkvæði, jafnt ríkisvalds og sveitarfélaga sem samtaka, fyrirtækja og einstaklinga. Það má engan tíma missa, nú verður að virkja hugvitið.