Ferill 390. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 390 . mál.


813. Nefndarálit


um till. til þál. um skipulega ræktun íslenska fjárhundsins.

Frá meiri hluta landbúnaðarnefndar.


    Nefndin hefur fjallað um tillöguna sem gerir ráð fyrir að landbúnaðarráðherra verði falið að skipa nefnd til að gera tillögur um aðgerðir til að vernda íslenska fjárhundinn og hreinrækta stofninn. Meiri hlutinn mælir með samþykkt tillögunnar en leggur áherslu á að nefndin, sem skipuð verður, hafi í störfum sínum náið samráð við Búnaðarfélag Íslands og Hundaræktarfélag Íslands.
    Á fund nefndarinnar komu til viðræðna Brynjólfur Sandholt yfirdýralæknir og frá Hundaræktarfélagi Íslands Guðrún Guðjohnsen formaður og Helga Finnsdóttir dýralæknir.     Guðjón A. Kristjánsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 22. mars 1994.


Guðni Ágústsson,

Jóhannes Geir Sigurgeirsson.

Kristín Ástgeirsdóttir.

frsm.


Ragnar Arnalds.

Eggert Haukdal.

Árni M. Mathiesen,

með fyrirvara.


Gísli S. Einarsson,

með fyrirvara.