Ferill 580. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 580 . mál.


899. Frumvarp til laga



um útflutning hrossa.

(Lagt fyrir Alþingi á 117. löggjafarþingi 1993–94.)



1. gr.


    Landbúnaðarráðherra hefur yfirumsjón með útflutningi á hrossum.
    Ráðherra til ráðuneytis um útflutning hrossa skal vera þriggja manna nefnd, útflutnings- og markaðsnefnd. Búnaðarfélag Íslands og Félag hrossabænda skulu hvort um sig tilnefna mann í nefndina en ráðherra skipar formann án tilnefningar. Hlutverk nefndarinnar er að:
    gera tillögur að reglugerð um útflutning hrossa,
    hafa frumkvæði að kynningu íslenska hestsins erlendis og öflun markaða,
    tryggja á hverjum tíma sem hagkvæmastan útflutning á hrossum.
    

2. gr.


    Útflutningur á hrossum er heimill án sérstakra leyfa, nema þegar um er að ræða úrvalskynbótahross. Útflutningshross skulu ekki vera eldri en 15 vetra. Þó má flytja úr landi eldri kynbótahross en þá einungis í flugvélum. Heimilt er að setja í reglugerð sérstakar kröfur um heilbrigði fullorðinna kynbótahrossa sem flutt eru úr landi.
    

3. gr.


    Öll hross, sem flutt eru úr landi, skulu heilbrigðisskoðuð af dýralækni. Honum skal tilkynnt um útflutninginn með minnst sjö daga fyrirvara. Heilbrigðisskoðun skal ávalt miða við þær kröfur sem gerðar eru í innflutningslandi. Einungis er heimilt að flytja úr landi heilbrigð og rétt sköpuð hross. Dýralæknir heldur skrá um skoðuð hross og skulu hrossin merkt með þeim hætti að ekki verði um villst. Skrá þessi fylgir hrossum í flutningsfari. Hverju hrossi, sem kemur til skoðunar, skal fylgja upprunavottorð skv. 5. gr. Landbúnaðarráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um heilbrigðisskoðun, merkingu útflutningshrossa og aðstöðu í útflutningshöfn.
    Landbúnaðarráðherra ákveður í samráði við yfirdýralækni þóknun fyrir skoðun hrossanna og eftirlit með útflutningnum og greiðist hún af útflutnings- og markaðsnefnd.

4. gr.


    Flutningsfar fyrir hross og öll aðstaða fyrir hrossin skal vera með þeim hætti að flutningurinn verði hrossinu til sem minnstra óþæginda. Landbúnaðarráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um aðbúnað í flutningsfari og verði þar stuðst við alþjóðlega samninga um dýravernd sem Ísland er aðili að. Yfirdýralæknir eða fulltrúi hans skal líta eftir að reglum um aðbúnað sé fylgt. Ráðherra getur í reglugerð takmarkað þann tíma sem heimilt er að flytja hross með skipum.
    

5. gr.


    Útfluttum hrossum skal fylgja upprunavottorð er staðfesti uppruna og ætterni. Upprunavottorð skal byggja á upplýsingum úr gagnabanka Búnaðarfélags Íslands vegna kynbótastarfs eða öðrum sambærilegum upplýsingum.
    Innlendir hrossaræktendur og samtök þeirra eiga forkaupsrétt að úrvalskynbótagripum og er landbúnaðarráðherra heimilt að fresta útflutningi á þeim í allt að tvær vikur meðan forkaupsréttur er boðinn. Við forkaupsréttarboð skal miða við uppgefið útflutningsverð. Hrossaræktarnefnd, sem starfar skv. 5. og 6. gr. laga nr. 84/1989, um búfjárrækt, skal árlega ákveða það kynbótamat/-spá sem hross skal hafa til að geta talist úrvalskynbótagripur.
    

6. gr.


    Heimilt er landbúnaðarráðherra að leggja allt að 7.000 kr. gjald á hvert útflutt hross og breytist það árlega, 1. febrúar, samkvæmt vísitölu búfjárræktar sem útgefin er af Hagstofu Íslands. Gjaldið skal innheimt við útgáfu upprunavottorðs og renna í sérstakan sjóð í vörslu útflutnings- og markaðsnefndar. Sjóðnum er ætlað að standa undir kostnaði við starf útflutnings- og markaðsnefndar, heilbrigðisskoðun á útflutningshrossum, útgáfu upprunavottorða og 5% skulu renna í stofnverndarsjóð íslenska hestakynsins sem starfar skv. 15. gr. laga nr. 84/1989, um búfjárrækt. Eftirstöðvar hvers árs veitir landbúnaðarráðherra sem styrki til útflutnings- og markaðsmála að fengnum tillögum útflutnings- og markaðsnefndar.
    Reikninga sjóðsins skal birta árlega í Stjórnartíðindum og skal Ríkisendurskoðun endurskoða þá.
    

7. gr.


    Landbúnaðarráðherra setur að fengnum tillögum útflutnings- og markaðsnefndar reglugerð um nánari framkvæmd laga þessara.
    

8. gr.


    Brot gegn lögum þessum eða reglugerðum settum samkvæmt þeim varðar sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.
    

9. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi lög nr. 64/1958, um útflutning hrossa, svo og lög nr. 67/1969, lög nr. 39/1986, 53. gr. laga nr. 10/1983 og lög nr. 40/1993 um breytingar á þeim lögum.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Lög um útflutning hrossa eru frá árinu 1958 en hefur verið breytt lítillega þrisvar sinnum. Fyrst með lögum nr. 67/1969 þar sem urðu orðalagsbreytingar ásamt því að hreyft var við aldursmörkum, næst með lögum nr. 39/1986 þar sem gefin var heimild til útflutnings á hrossum eldri en tíu vetra að fengnu samþykki yfirdýralæknis og að síðustu með lögum nr. 40/1993 þar sem breytt var ákvæðum um hver skyldi greiða fyrir heilbrigðisskoðun á útflutningshrossum. Við afgreiðslu laga nr. 40/1993 komu fram ábendingar um að tímabært væri að endurskoða lögin um útflutning hrossa í heild sinni og beindi landbúnaðarnefnd Alþingis því til landbúnaðarráðuneytisins. Að því hefur verið unnið í vetur og hefur ráðuneytið haft samráð við yfirdýralækni, hrossaræktarráðunaut Búnaðarfélags Íslands og framkvæmdastjóra Félags hrossabænda við það starf. Auk þess hefur búnaðarþing ályktað um drögin og hefur verið tekið tillit til þeirrar ályktunar.
    Aðstæður til útflutnings á hrossum eru í öllum aðalatriðum mjög breyttar nú frá því sem var árið 1958. Sérstaklega á það við um flutningatækni og aðbúnað um borð í flutningsfari. Hann hefur batnað og því ekki sama ástæða til að hafa áhyggjur af velferð hrossanna í flutningum og áður. Einnig eru flutningsför miklu öruggari og þola meira álag vegna sjóa og veðurs. Því er m.a. eðlilegt að endurskoða þau tímamörk er gilda um flutning hrossa með skipum.
    Í frumvarpinu er hvergi slakað á kröfum um aðbúnað og einnig gert ráð fyrir að ráðherra setji í reglugerð skýrar reglur um aðstöðu og búnað er fylgja skal hrossum. Skal þar taka mið af þeim alþjóðlegum samningum um dýravernd sem Ísland er aðili að. Gert ráð fyrir að yfirdýralæknir eða fulltrúi hans sjái um að þeim reglum sé framfylgt. Í samræmi við óskir hrossabænda er reglum um heilbrigðisskoðun breytt á þann hátt að nú getur hún farið fram í heimahéraði og því ekki nauðsynlegt að safna hrossunum saman í útflutningshöfn fyrr en sama dag og hrossin fara úr landi. Í reglugerð verður kveðið nánar á um heilbrigðisskoðun, merkingu og hlutverk trúnaðardýralæknis í útflutningshöfn.
    Ekki er lengur gert ráð fyrir að veitt séu leyfi fyrir útflutningi á hrossum heldur er einungis krafist upprunavottorðs og heilbrigðisskoðunar. Heimilt er þó að fresta útflutningi úrvalskynbótagripa og bjóða innlendum ræktendum að ganga inn í kaupin. Árlega skal hrossaræktarnefnd setja viðmiðunarmörk um hvað telst úrvalskynbótagripur og þau auglýst. Þetta er mikil einföldun því nú er útgáfa útflutningsleyfa flókin og margir aðilar sem að henni koma.     
    Landbúnaðarráðherra hefur á hendi yfirumsjón með útflutningi á hrossum. Honum til ráðuneytis verður þriggja manna útflutnings- og markaðsnefnd sem hefur margþætt hlutverk, m.a. að skipuleggja markaðsstarf fyrir hross á erlendri grund, jafnframt því að leita leiða til að minnka kostnað við útflutninginn. Í dag er gert ráð fyrir að Búnaðarfélag Íslands og Framleiðsluráð landbúnaðarins vinni að þessum málum en eðlilegt hlýtur að teljast að Félag hrossabænda komi í stað Framleiðsluráðs.
    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að innheimta gjald á hvert útflutt hross. Gjaldið skal renna í sjóð er hafi það hlutverk að standa undir kostnaði við heilbrigðisskoðun vegna útflutnings og við útgáfu upprunavottorðs auk þess sem 5% gjaldsins renni í stofnverndarsjóð. Þessu ákvæði er einkum ætlað að einfalda það kerfi sem nú ríkir. Þá er horfið frá því að útflytjendur kosti beint heilbrigðisskoðun enda er það í samræmi við þá viðurkenndu stefnu að yfirvöld sjái um eftirlit en innheimti gjald fyrir. Er það gert til að minnka líkur á hagsmunaárekstrum. Það fjármagn sem eftir stendur verður notað til markaðsstarfa. Rétt er að taka sérstaklega fram að nái þetta ákvæði fram að ganga mun ráðuneytið breyta reglugerð um stofnverndarsjóð íslenska hestakynsins. Hann mun þó starfa áfram enda á sjóðurinn umtalsverðar eignir og getur sinnt því hlutverki sem honum er ætlað án mikilla fjárveitinga.     
    Ákvæði þessa frumvarps gilda ekki um útflutning á sæði eða fósturvísum.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Greinin er nýmæli. Í henni er kveðið á um nefnd, útflutnings- og markaðsnefnd, sem skal vera ráðherra til ráðuneytis um útflutning á hrossum og sem flesta þætti er tengjast þeim málum. Í nefndinni skulu sitja fulltrúar Búnaðarfélags Íslands og Félags hrossabænda enda eru þetta þau samtök sem mest koma að ræktun og verslun með hross. Formann skipar ráðherra síðan án tilnefningar. Nefndin hefur margþætt hlutverk, m.a. að leita nýrra markaða fyrir hross erlendis og gera tillögur að reglugerð um útflutning hrossa. Þær tillögur gerir nefndin í samráði við hagsmunaaðila, dýraverndarnefnd, yfirdýralækni og e.t.v. fleiri. Nefndin skal hafa frumkvæði að alþjóðlegu samstarfi og hún skal leita leiða til að minnka kostnað við útflutning. Með þessari nefndarskipan er fyrst og fremst verið að auka samstarf þeirra sem við þetta starfa og afla sambanda við nýja aðila sem lagt geta verkefninu lið.
    

Um 2. gr.


    Hér er lagt til að útflutningur hrossa sé heimill án sérstakra leyfa og er það nýmæli. Í lögum nr. 84/1989, um búfjárrækt, er gert ráð fyrir að útflutningur á tímgunarhæfu búfé sé háður leyfum landbúnaðarráðuneytisins. Ástæða þess að lagt er til að aðrar reglur gildi um hross en annað búfé er að útflutningur er stór hluti af verðmætasköpun í hrossarækt auk þess sem hann er miklu algengari en í öðru búfé. Fjöldi kynbótagripa á landinu er mjög mikill og ekki ástæða til að ætla að það komi niður á ræktuninni þó hluti þeirra sé seldur úr landi og óþarfi að gera það ferli of flókið. Því verður við það miðað að einungis úrvalsgripir að mati hrossaræktarnefndar séu háðir forkaupsrétti innlendra ræktenda.
    Núgildandi lög gera ráð fyrir að útflutningshross skuli ekki vera eldri en 10 vetra. Þó er heimilt að flytja út eldri hross ef yfirdýralæknir mælir með því. Þar sem ekki þykir lengur ástæða til að hafa áhyggjur af velferð hrossa í flutningum eru þessi aldursmörk rýmkuð og jafnframt er gefinn kostur á að flytja úr landi eldri kynbótahross. Oft má fá gott verð fyrir fullorðin kynbótahross í útflutningi þó verðgildi og kynbótagildi þeirra sé takmarkað hérlendis.
    

Um 3. gr.


    Ákvæðin eru um margt lík þeim sem nú gilda en opnað er fyrir þann möguleika að hrossin séu heilbrigðisskoðuð í heimabyggð og aðeins fari fram minni háttar skoðun í útflutningshöfn. Framkvæmdin nú er með þeim hætti að hrossum er safnað saman í útflutningshöfn sem í flestum tilfellum er Reykjavík og nágrenni. Þar eru þau skoðuð af héraðsdýralækni sem vottar heilbrigði þeirra og fylgist síðan með að þessi sömu hross fari um borð í flutningsfar. Vegna þess að það er dýrt að flytja hross innan lands eru hrossin yfirleitt skoðuð af dýralækni í heimabyggð áður en þau eru flutt í útflutningshöfn. Þetta er gert til að tryggja að þau séu ekki send aftur heim og á þau falli kostnaður sem enginn vill greiða. Þess vegna er um tvíverknað að ræða þegar hrossin eru skoðuð aftur í útflutningshöfn. Þessi tvíverknaður eykur kostnað við útflutninginn og þess vegna er þessi breyting lögð til. Í reglugerð verður nánar kveðið á um skil milli heilbrigðisskoðunar og eftirlits í útflutningshöfn. Eftir sem áður er hægt að fá skoðun hjá dýralækni í útflutningshöfn.
    Þá er lagt til að heilbrigðisskoðun verði greidd af útflutnings- og markaðsnefnd af því fjármagni sem innheimt verður af útfluttum hrossum. Þar er horfið frá lagabreytingu frá því í fyrra og þeirri verklagsreglu sem mótast hefur undanfarin ár. Þetta er í samræmi við þá þróun að minnka hagsmunatengsl.
    

Um 4. gr.


    Sambærileg ákvæði eru í núgildandi lögum en nú er gert ráð fyrir ítarlegum ákvæðum í reglugerð og skal þar miða við þá alþjóðlegu samninga um dýravernd sem Ísland er aðili að. Eðlilegt er að sá tími ársins sem heimilt er að nota skip við flutninga verði endurskoðaður í samræmi við flutningatækni og upplýsingar úr veðurfarssögu.

Um 5. gr.


    Fyrri hluti greinarinnar um upprunavottorð er nýmæli í lögum. Ákvæði um upprunavottorð er í reglugerð um útflutning hrossa en eðlilegt er í ljósi mikilvægi þessa vottorðs að lögin geymi ákvæði um útgáfu þess. Eðlilegt er að vottorðið byggi á upplýsingum úr gagnabanka kynbótastarfsins enda geymir hann flestar þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til útgáfu þess.
    Seinni hluti greinarinnar fjallar um heimild ráðherra til að fresta útflutningi á úrvalskynbótahrossum og forkaupsrétt innlendra ræktenda á uppgefnu útflutningsverði. Bæði þessi ákvæði eru í núgildandi löggjöf. Samkvæmt 2. gr. núgildandi laga um útflutning hrossa og 14. gr. laga nr. 84/1985, um búfjárrækt, þarf sérstakt leyfi í hvert sinn sem kynbótahross er flutt úr landi þannig að hér er um einföldun að ræða. Gert er ráð fyrir að árlega verði gefin út viðmiðunarmörk varðandi það kynbótamat/-spá sem gildi sem viðmiðun um úrvalskynbótagrip.
    

Um 6. gr.


    Samkvæmt núgildandi reglum þarf að greiða ýmis gjöld af þeim hrossum sem flutt eru úr landi. Þar má nefna heilbrigðisskoðun, sjóðagjöld, upprunavottorð og gjald til stofnverndarsjóðs. Verði þetta frumvarp að lögum koma þessi gjöld (að sjóðagjöldum undanskildum) saman í eitt gjald sem verður það sama fyrir öll hross. Gjald þetta, sem innheimt verður við útgáfu upprunavottorðs, skal standa undir heilbrigðisskoðun og útgáfu upprunavottorðs auk þess sem 5% renna í stofnverndarsjóð íslenska hestakynsins. Jafnframt verður til sjóður sem skal nota til markaðs- og útflutningsmála. Sjóður þessi verður í vörslu útflutnings- og markaðsnefndar og mun ráðherra úthluta úr honum að fengnum tillögum. Gjaldið verður föst krónutala en breytist árlega samkvæmt vísitölu búfjárræktar sem Hagstofa Íslands gefur út.
    Þessi breyting er lögð fram til einföldunar og til að fella í eitt þau gjöld sem nú eru innheimt. Hlutverk stofnverndarsjóðs hefur breyst undanfarið og nú er ekki sama nauðsyn á starfi hans og var auk þess sem hann á talsverðar eignir til að vinna með. Vinnsla upprunavottorða verður einfaldari í framtíðinni þegar til kemur samkeyrsla við gagnabanka kynbótastarfsins og fyrr hefur verið getið um ástæður þess að breyta gjaldtöku vegna heilbrigðisskoðunar. Hins vegar er enn ástæða til að efla sameiginlegt markaðsstarf og verður hluti gjaldsins notaður til þess. Þar getur m.a. komið til greina að ráða sérstakan útflutningsráðunaut eða efla samstaf við sérhæfðar stofnanir á þessu sviði. Það getur gerst með útboði á ákveðnum þáttum kynningar og markaðsstarfs. Gert er ráð fyrir að útflutningur hrossa verði ekki minni en 2.000 hross næstu árin sem þýðir að tekjur sjóðsins verða um 14 milljónir kr.
    

Um 7. gr.


    Þar sem frumvarpið er tillaga að rammalöggjöf þarf að útfæra marga þætti þess í reglugerð. Til þess verks þarf að kalla eftir tillögum margra aðila sem að þessum málum vinna.
    

Um 8. og 9. gr.


    Greinarnar þarfnast ekki skýringar.