Ferill 545. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 545 . mál.


971. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 3/1987, um fjáröflun til vegagerðar, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Á fund nefndarinnar um málið mættu frá fjármálaráðuneytinu Indriði H. Þorláksson skrifstofustjóri og Snorri Olsen deildarstjóri. Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingu sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali. Hún felur í sér að sleppt verði að tilgreina þau tímamörk sem mælt er fyrir um í 2. mgr. 1. gr. frumvarpsins en ráðherra í staðinn falið að kveða nánar á um framkvæmd greinarinnar í reglugerð.
    Guðjón Guðmundsson og Ingi Björn Albertsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 18. apríl 1994.



Halldór Ásgrímsson,

Vilhjálmur Egilsson.

Rannveig Guðmundsdóttir.


form., frsm.



Steingrímur J. Sigfússon.

Jóhannes Geir Sigurgeirsson.

Árni R. Árnason.



Guðrún J. Halldórsdóttir.