Ferill 269. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


117. löggjafarþing 1993–1994.
Nr. 34/117.

Þskj. 1319  —  269. mál.


Þingsályktun

um rannsóknir á heimilisofbeldi, svo og öðru ofbeldi gegn konum og börnum á Íslandi.


    Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að skipa nefnd er undirbúi og hafi umsjón með rannsóknum á ástæðum, afleiðingum og umfangi heimilisofbeldis, svo og annars ofbeldis gegn konum og börnum.
    Nefndin geri tillögur um úrbætur og gangi frá skýrslu um málið sem lögð verði fyrir Alþingi.
    Nefndin skili áfangaskýrslum um störf sín eftir því sem þeim miðar fram en lokaskýrslan verði lögð fram á haustþingi 1995.

Samþykkt á Alþingi 11. maí 1994.