Ferill 43. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 43 . mál.


103. Nefndarálit



um frv. til l. breyt. á l. um Viðlagatryggingu Íslands, nr. 55/1992, með síðari breytingum, og lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 28/1985, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fékk á fund til sín Ólaf Davíðsson frá forsætisráðuneyti og Kjartan Gunnarsson frá viðskiptaráðuneyti.
    Eftir að hafa rætt málið hefur nefndin ákveðið að leggja til að þær breytingar verði gerðar á frumvarpinu að hætt verði við að innheimta 20% aukaálag á iðgjöld viðlagatryggingar næstu fimm árin. Álagið mun því áfram vera 10% út árið 1999, sbr. lög nr. 36/1995, og ætti að gefa samtals 255 millj. kr. í ofanflóðasjóð á næstu fimm árum. Þess í stað leggur nefndin til að hlut ur Viðlagatryggingar í ofanflóðasjóði verði aukinn um 3 prósentustig af heildariðgjaldatekjum umfram það sem frumvarpið gerir ráð fyrir og að sú ráðstöfun standi í sex ár en ekki fimm. Þetta ætti að gefa 192 millj. kr. á ársgrundvelli eða samtals um 1.152 millj. kr. á næstu sex árum. Ofanflóðasjóður fær 6,5 millj. kr. á ári samkvæmt fjárlögum. Því má áætla að þessar til lögur nefndarinnar leiði til þess að heildartekjur sjóðsins á næstu sex árum verði um 1.446 millj. kr. Gerð er tillaga um þær breytingartillögur nefndarinnar sem hér hafa verið raktar á sérstöku þingskjali.

Alþingi, 14. júní 1995.



    Sólveig Pétursdóttir,     Ágúst Einarsson.     Jón Baldvin Hannibalsson.
    frsm.          

    Pétur H. Blöndal.     Steingrímur J. Sigfússon.     Arnbjörg Sveinsdóttir.

    Einar Oddur Kristjánsson.     Magnús Stefánsson.