Ferill 4. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 4 . mál.


122. Breytingartillögur



við frv. til l. um gjald af áfengi.

Frá fjármálaráðherra.



     1 .     Við 2. gr. Við 2. mgr. bætist nýr málsliður er orðist svo: Heimilt er með reglugerð að takmarka innflutning samkvæmt þessari málsgrein við ákveðnar vörutegundir, hámarksmagn eða hámarksverðmæti og að setja skilyrði fyrir því hverjir megi flytja inn samkvæmt henni.
     2 .     Við 11. gr. Í stað „1. júlí 1995“ komi: 1. september 1995.