[13:33]
Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:
,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 30. janúar 1996, kl. 13.30.
Gjört í Reykjavík, 26. janúar 1996.
Vigdís Finnbogadóttir.
-------------------
Davíð Oddsson.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.``
Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismönnum, svo og starfsmönnum Alþingis, óska ég gleðilegs árs, þakka hið liðna, býð menn velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.