Sérstakur ákærandi í efnahagsbrotum

Mánudaginn 05. febrúar 1996, kl. 15:44:41 (2709)

1996-02-05 15:44:41# 120. lþ. 83.12 fundur 180. mál: #A sérstakur ákærandi í efnahagsbrotum# þál., dómsmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 83. fundur


[15:44]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):

Herra forseti. Það er að því stefnt að frv. að nýjum lögum um skipulag lögreglunnar og lögreglumálefni komi til umfjöllunar á þessu þingi. Ég get ekki nefnt nákvæmlega hvaða dag við náum að leggja það fram en við stefnum að því að gera það svo tímanlega að það geti fengið eðlilega umfjöllun á þessu þingi.