Fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri

Mánudaginn 12. febrúar 1996, kl. 18:59:27 (2920)

1996-02-12 18:59:27# 120. lþ. 88.2 fundur 254. mál: #A fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri# (EES-reglur, fiskveiðar og fiskvinnsla) frv. 46/1996, 242. mál: #A fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri# (sjávarútvegsfyrirtæki) frv., 307. mál: #A fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri# (sjávarútvegsfyrirtæki) frv., MS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 88. fundur


[18:59]

Magnús Stefánsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Enn vakna spurningar. Hv. þm. talaði um það að honum hafi verið bent á að leggja fram þetta frv. Það væri nú gaman fyrir okkur sem sitjum hér að heyra hvaðan sú ábending kom (Gripið fram í: Frá þingflokknum.) þar sem hv. þm. er nú einn af stjórnarliðinu og hér liggur fyrir stjfrv. sem gengur aðrar götur. Það væri því fróðlegt að heyra það, virðulegi forseti.