Vegáætlun 1995--1998

Þriðjudaginn 13. febrúar 1996, kl. 14:14:14 (2935)

1996-02-13 14:14:14# 120. lþ. 89.1 fundur 295. mál: #A vegáætlun 1995--1998# (endurskoðun fyrir 1996) þál. 12/1996, samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 89. fundur


[14:14]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):

Herra forseti. Ég tók einmitt fram í minni frumræðu að það væri helmingi meiri niðurskurður á framkvæmdaátakinu heldur en á hinni almennu vegagerð. Það var sérstaklega tekið fram og ég rakti það að sú aðferð bitnaði sérstaklega á Norðurl. e. og Stór-Reykjavíkursvæðinu. Mér finnst dálítið undarlegt af hv. þm. að láta eins og hann hafi verið fjarverandi rétt á meðan framsöguræðan var flutt og getur ekki afsakað ranghugmyndir sínar eða skrök með því að ekki hafi verið gerð grein fyrir því í frumræðu.