[14:46]
Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Ef þetta stendur í athugasemdum við stjfrv. sem ég efa ekki að sé rétt... (SvanJ: Í lagagreininni sjálfri.) Í lagagreininni sjálfri. Þá get ég alveg lýst því yfir að ég tel þá túlkun ranga. Þetta er ekki svona.
Í öðru lagi hvatti ég til þess að efh.- og viðskn. þingsins taki þetta mál til meðferðar og reyni að finna á því flöt, kanni hvort við gætum ekki náð víðtækri samstöðu um það hvernig við högum þessum málum. Og ég ítreka það hér.