Fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri

Mánudaginn 19. febrúar 1996, kl. 16:40:45 (3139)

1996-02-19 16:40:45# 120. lþ. 92.3 fundur 254. mál: #A fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri# (EES-reglur, fiskveiðar og fiskvinnsla) frv. 46/1996, 242. mál: #A fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri# (sjávarútvegsfyrirtæki) frv., 307. mál: #A fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri# (sjávarútvegsfyrirtæki) frv., ÓÖH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 92. fundur

[16:40]

Ólafur Örn Haraldsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er aðeins til þess að ljúka umræðunni og fyrir kurteisissakir að ég kem hér. Ég hef fáu við að bæta. Ég tel að hraða eigi umræðu um grundvallaratriðin, um eignaraðildina og arðtöku og koma síðan að ákvörðunum um erlenda fjárfestingu í sjávarútvegi.