Forseti (Ragnar Arnalds):
Forseti vill upplýsa að vegna óska hv. 4. þm. Vestf. var leitað eftir því hvort hæstv. fjmrh. sæi sér fært að koma á þennan fund, en þá kom á daginn að hann er erlendis og verður það í þessari viku og þeirri næstu. Hæstv. forsrh. gegnir störfum fjmrh. nú um stundir og eins og forseti hefur þegar upplýst er hann veikur.