Tekjuskattur og eignarskattur

Fimmtudaginn 11. apríl 1996, kl. 11:55:53 (4537)

1996-04-11 11:55:53# 120. lþ. 116.4 fundur 344. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (nauðasamningar) frv. 64/1996, SvG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur

[11:55]

Svavar Gestsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir þetta fróðlega, víðtæka og efnislega svar sem hann veitti við athugasemd minni. Ég vænti þess að þó hann hafi stóra vasa og kjósi að orða það þannig að hann hafi bæði kratana og Framsókn í vasanum þá hafi hann ekki tekið ákvörðun um að fara með þá báða yfir Skerjafjörðinn eins og ég hef heyrt að hæstv. fjmrh. sé einmitt að undirbúa þessa stundina.