Vörugjald

Fimmtudaginn 11. apríl 1996, kl. 18:50:26 (4587)

1996-04-11 18:50:26# 120. lþ. 116.9 fundur 445. mál: #A vörugjald# (magngjald o.fl.) frv. 89/1996, 444. mál: #A virðisaukaskattur# (vinna við íbúðarhúsnæði) frv. 86/1996, fjmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur

[18:50]

Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get ekki setið á mér af hreinni illkvittni að benda á að fyrr í umræðum í dag vorum við hv. þm. Hjörleifur Guttormsson að ræða saman um vörugjald á olíu. Þá fór sá hinn sami þingmaður sem er flokksbróðir hv. ræðumanns, hörðum orðum um þær ríkisstjórnir sem hafa dregið úr framkvæmdum til vegagerðar. Mér finnst það því hvorki hljóma sannfærandi né að það sé samhljómur í röddum þeirra hv. þm. Sigríðar Jóhannesdóttur og Hjörleifs Guttormssonar á þessari dagstund sem við höfum rætt saman um ýmis mál.