Sigríður Jóhannesdóttir:
Hæstv. heilbrrh. Ég vil leyfa mér að efast um það að nefnd, þó að það séu taugalæknar á vegum heilbrrn., sem aldrei hefur séð viðkomandi sjúklinga hafi meira vit á því hverjir þurfa á þessu lyfi að halda og hverjum mundi koma það að gagni heldur en þeir læknar sem hafa annast alla þessa sjúklinga og mælt með því að þeir fengju lyfið.