Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég er vanbúinn að svara þessari spurningu vegna þess að ég hef ekki alveg á reiðum höndum hvar sú vinna við yfirfærslu eða tilfærslu er stödd. Það er í því fólk á mínum vegum og frá umhvrn. Ég þyrfti að fá ráðrúm til þess að leita upplýsinga hjá því.
Ég vek athygli á því að nokkuð lifir enn þessa þings þannig að það er ekki öll nótt úti.