Starfshættir í umhverfisnefnd

Þriðjudaginn 07. maí 1996, kl. 13:53:59 (5711)

1996-05-07 13:53:59# 120. lþ. 132.92 fundur 294#B starfshættir í umhverfisnefnd# (aths. um störf þingsins), SvG (ber af sér sakir)
[prenta uppsett í dálka] 132. fundur

[13:53]

Svavar Gestsson:

Virðulegi forseti. Ég kvaddi mér hljóðs til að bera af mér sakir. Það var borið á mig af hv. 2. þm. Reykn. að ég ynni illa hér í þinginu og ég stend hér upp til að mótmæla því. Að öðru leyti vil ég segja að það sem ég sagði var ekki það að Alþingi fari að vinna illa heldur sagði ég að það væri hætta á því að Alþingi færi að vinna illa. Það er hætta á því að menn hætti að vanda sig. Ef hv. þm. telur þessi aðvörunarorð einskis verð er það hans að meta það svo.