Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem Lára Margrét Ragnarsdóttir, 6. þm. Reykv., getur ekki sótt þingfundi á næstunni vegna veikinda leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþingmaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Katrín Fjeldsted læknir, taki sæti á Alþingi í fjarveru hennar.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Geir H. Haarde,
formaður þingflokks Sjálfstfl.
Katrín Fjeldsted hefur áður setið á þessu þingi og er boðin velkomin til starfa á ný.