Guðný Guðbjörnsdóttir:
Herra forseti. Eins og kom fram í umræðum í gær þá er ég og hv. þm. Ögmundur Jónasson með fyrirvara á nefndaráliti vegna þess að okkur fannst ekki alveg skýrt að upplýsingar um laun yrðu tiltækar, þ.e. um persónulega kjarasamninga. Það er reyndar nokkuð hnykkt á þessu í nefndaráliti en ég er ekki alveg sannfærð um að upplýsingar um laun verði gefnar upp svo að ég hef kosið að sitja hjá við þessa grein.