Arnþrúður Karlsdóttir fyrir FI

Mánudaginn 20. maí 1996, kl. 15:05:31 (6269)

1996-05-20 15:05:31# 120. lþ. 142.99 fundur 312#B AK fyrir FI#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 142. fundur

[15:05]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hefur eftirfarandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Reykjavík, Arnþrúður Karlsdóttir fréttamaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Finnur Ingólfsson, 7. þm. Reykv.``

Arnþrúður Karlsdóttir hefur áður tekið sæti á þingi og er hún boðin velkomin til starfa að nýju.