Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):
Herra forseti. Ég vil gjarnan minna á það í framhaldi af því sem ég hef áður sagt að samkvæmt breytingartillögum samgn. nú og vegna meiri umferðar en áður hafði verið talið er svigrúm til þess að auka fé til öryggismála úr 60 millj. í 94 sem er töluvert og kemur auðvitað að góðu haldi.