1996-05-21 00:20:13# 120. lþ. 142.12 fundur 295. mál: #A vegáætlun 1995--1998# (endurskoðun fyrir 1996) þál. 12/1996, ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 142. fundur

[24:20]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Kemur nú þessi söngur eina ferðina enn, þ.e. að það sé ekki verið að skera niður heldur að fresta. Hvernig væri þá að hæstv. ráðherra svaraði þeirri spurningu sem hann var spurður í upphafi umræðunnar í kvöld. Hvað ætlar hann að gera á næsta ári? Hverju verður frestað þá og hvar verður skorið niður þá? Það hafa ekki komið fram nokkur svör um það í þessari umræðu hvað hæstv. ráðherra hyggst fyrir næsta ár og þarnæsta, árin fyrir 1999. Það væri fróðlegt að fá að heyra það hjá hæstv. ráðherra.