1996-05-21 00:23:46# 120. lþ. 142.12 fundur 295. mál: #A vegáætlun 1995--1998# (endurskoðun fyrir 1996) þál. 12/1996, ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 142. fundur

[24:23]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Þetta var mjög skýrt svar, mjög skýrt svar. Ég sagði hv. þm. að megnið af þessum tekjum væru nú þegar komnar í ríkissjóð þannig að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur af því að það þyrfti að fara að draga saman vegna þess að þær kæmu e.t.v. ekki. Enda hefur bensínverð verið að hækka því miður þannig að það lítur allt út fyrir að þessar tekjur muni aukast enn meir.