Forseti (Ragnar Arnalds):
Forseti Alþingis vill geta þess að honum hefur verið afhent ályktun 38. þings Alþýðusambands Íslands um réttindamál launafólks. Í ályktuninni felst áskorun til alþingismanna að stöðva framgang frumvarpa ríkisstjórnarinnar svo ráðrúm gefist til þess að fullreyna hvort samkomulag náist milli aðila vinnumarkaðarins um samskiptareglur sín á milli.