Guðmundur Árni Stefánsson:
Virðulegi forseti. Þeir brosa breitt í Garðastrætinu þessar mínúturnar. Það eru meira að segja brosviprur í andliti stjórnarherranna en óbragð í munnum þeirra margra þrátt fyrir allt. Hér er um sannarlegan Pyrrhosarsigur að ræða og þessu stríði sem í hönd fer mun ríkisstjórnin svo sannarlega tapa. Þetta frv. vil ég norður og niður og alls ekki til 3. umr. og segi því nei.