Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Ég styð þetta frv. en hafði þar á fyrirvara og vil gera grein fyrir honum. Hann liggur í því að þetta er ekki sú allsherjarlausn sem ríkisstjórnin hefur viljað láta í veðri vaka og kemur engan veginn í stað frv. um greiðsluaðlögun sem Framsfl. lofaði á sínum tíma fyrir kosningar. Hér er hins vegar um mikilvægt framfaramál að ræða og mun gagnast mörgu skuldugu fólki. Ég segi já.