Frsm. meiri hluta menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil sérstaklega nefna í þessu sambandi eitt atriði sem er mjög mikilvægt við uppbyggingu starfsnáms og það er að það sé unnið í samvinnu við atvinnulífið. Það er eitt af því sem er fest niður í þessu frv. með mjög skýrum hætti að fulltrúar frá atvinnulífinu komi að mótun starfsnámsins.