Stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar

Miðvikudaginn 29. maí 1996, kl. 11:24:19 (6725)

1996-05-29 11:24:19# 120. lþ. 151.15 fundur 331. mál: #A stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar# frv. 103/1996, 364. mál: #A póstlög# (Póstur og sími hf.) frv. 107/1996, 408. mál: #A fjarskipti# (meðferð einkaréttar ríkisins) frv. 99/1996, KH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 151. fundur

[11:24]

Kristín Halldórsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Við hæstv. samgrh. höfum e.t.v. ekki haft aðgang að sömu upplýsingum. Ég er vitna til funda í hv. samgn. og fjölda álita sem við höfum fengið þar sem fulltrúar starfsfólks komu á fund nefndarinnar og staðfestu það sem stóð í álitum frá félögunum. Það var margítrekað í samræmi við fulltrúa samgn. að samráði hefði verið ábótavant og af einhverjum ástæðum telur starfsfólk sig vera í mikilli óvissu með framtíð sína hjá þessu fyrirtæki.