Frsm. landbn. (Egill Jónsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins staðfesta þann skilning minn sem reyndar kom fram í ræðu hv. síðasta ræðumanns að eins og nefndarálitið og tillögurnar liggja fyrir núna er það árétting um það að landvarsla á Íslandi eigi að vera undir landbrn.