Margrét Frímannsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Sú tækni sem við notum við eftirlitið kemur þessu ekkert við. Það sem hér er um að ræða er að það er með öllu óeðlilegt að það sé sama stofnunin, sama stjórnin sem hv. þm. á e.t.v. enn sæti í, ég býst við því, sem tekur ákvörun um það hvaða verk skuli farið í, hver skuli framkvæma það, á hvern hátt og taki síðan út árangurinn og sé jafnvel sjálf aðili að því öllu saman. Það er með öllu óeðlilegt og fjarskiptatæknin kemur þessu akkúrat ekkert við.