Ágúst Einarsson:
Herra forseti. Hér er verið að lögfesta vonda löggjöf og vinnubrögðin voru mjög slæm við undirbúning frv. Ég óttast afleiðingar sem verða í kjölfarið af samþykkt frv. Ég tel affarasælast að vísa frv. frá og það yrði þá lagt fram síðar eftir vandaðri undirbúning. Ég segi já.