Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. frá efh.- og viðskn. um frv. til laga um breytingu á lögum um gjald af áfengi, 269. mál. Nefndin hefur fjallað um málið og leggur til að það verði samþykkt óbreytt.
Málið snýst um það að þann sjóð, sem settur var á fót sl. vor til að vinna að forvörnum í áfengismálum, megi einnig nota til að vinna að forvörnum í fíkniefnamálum.