Eftirlaun alþingismanna

Miðvikudaginn 05. júní 1996, kl. 21:31:00 (7350)

1996-06-05 21:31:00# 120. lþ. 162.3 fundur 540. mál: #A eftirlaun alþingismanna# (forseti Alþingis, makalífeyrir) frv. 108/1996, Frsm. meiri hluta SP (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 162. fundur

[21:31]

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Sólveig Pétursdóttir):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá meiri hluta efh.- og viðskn. um frv. til laga um breyting á lögum um eftirlaun alþingismanna, nr. 46/1965, með síðari breytingum. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Indriða H. Þorláksson, formann stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, og Hauk Hafsteinsson, framkvæmdastjóra sjóðsins.

Frv. felur aðallega í sér tvær efnisbreytingar. Sú fyrri lýtur að starfskjörum forseta Alþingis. Skv. 2. gr. laga um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað, nr. 88/1995, skal forseti Alþingis njóta sömu launa- og starfskjara og ráðherrar. Til starfskjara telst m.a. réttur til eftirlauna. Frv. felur í sér að forseti skal, auk iðgjalds af þingfararkaupi, greiða iðgjald af forsetalaunum, þ.e. þeim launum sem hann hefur umfram þingfararkaup, í Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins og fá fyrir það sama lífeyrisrétt og ráðherrar hafa. Er það í samræmi við þá stefnu sem mörkuð var er lögin um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað voru sett. Hitt efnisatriði frv. miðar að því að breyta rétti til makalífeyris þannig að réttur eftirlifandi maka varaþingmanns til eftirlauna, sem eru hærri en eftirlaun varaþingmanns, er afnuminn. Mun breytingin ekki hafa áhrif á lífeyri þeirra sem þegar hafa hafið töku makalífeyris. Virkur lífeyrisréttur verður þannig ekki skertur. Í þessu efnisatriði frv. felst í raun að mati meiri hluta nefndarinnar leiðrétting á mistökum, sem rekja má til síðustu endurskoðunar laganna, en engin grundvallarbreyting.

Varðandi ákvæði 4. gr. um barnalífeyri vill meiri hlutinn benda á að almenn regla um barnalífeyri úr Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins er að hið látna foreldri hafi haft ráðningu a.m.k. til eins árs og hafi verið í starfi þegar andlát bar að. Ákvæði frv. er sett með hliðsjón af þeirri reglu.

Meiri hlutinn mælir með að frv. verði samþykkt óbreytt.

Undir nál. rita nöfn sín: Sólveig Pétursdóttir, Jón Kristjánsson, Sighvatur Björgvinsson, Árni Ragnar Árnason, Einar Oddur Kristjánsson, Ísólfur Gylfi Pálmason, Svavar Gestsson og Pétur H. Blöndal.