Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Í bréfi frá allshn. er tilkynnt að á fundi nefndarinnar 3. okt. hafi Sólveig Pétursdóttir verið kjörin formaður nefndarinnar og Valgerður Sverrisdóttir varaformaður.
Tilkynnt hefur verið með bréfi að þingflokkur Kvennalistans hafi þann 3. okt. kosið Guðnýju Guðbjörnsdóttur sem formann þingflokksins og Kristínu Halldórsdóttur sem varaformann.