Fjárlög 1996

Föstudaginn 06. október 1995, kl. 14:42:53 (84)

1995-10-06 14:42:53# 120. lþ. 4.2 fundur 1. mál: #A fjárlög 1996# frv., KH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka]

Kristín Halldórsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir svörin, hæstv. ráðherra. Mér var alls ekki ljóst að það væri hefðbundinn gangur mála að kynna þetta þannig fyrir þessum aðilum. Ég verð að segja alveg eins og er að mér finnst ekki við hæfi að nefndarmenn í fjárln. njóti ekki sama trúnaðar og fulltrúar þessara aðila. Mér finnst ekki við hæfi að alþingismenn njóti ekki sömu aðstæðna og fulltrúar þessara aðila.