Fjárlög 1996

Föstudaginn 06. október 1995, kl. 16:45:21 (105)

1995-10-06 16:45:21# 120. lþ. 4.2 fundur 1. mál: #A fjárlög 1996# frv., ÁÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka]

Ásta B. Þorsteinsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Já, ég bjóst við að þetta yrði tekið með og þetta er hluti af þeim talnaleik sem ég var að tala um rétt áðan. Ég get líka upplýst hæstv. félmrh. að þær tölur sem ég er að kynna eru nákvæmlega þær sem stjórnarnefnd um málefni fatlaðra fékk upplýst á fyrsta fundi sínum í gærmorgun um það ráðstöfunarfé sem sjóðurinn mun hafa með höndum á næsta ári. Þar með tekið inn í framlag vegna sölu vistheimilisins Sólborgar á Akureyri.