Tilkynning um kosningu embættismanna fastanefnda

Fimmtudaginn 12. október 1995, kl. 10:33:50 (214)

1995-10-12 10:33:50# 120. lþ. 9.91 fundur 23#B tilkynning um kosningu embættismanna fastanefnda#, Forseti RA
[prenta uppsett í dálka]

Forseti (Ragnar Arnalds):

Tilkynnt hefur verið með bréfi að á fundi efh.- og viðskn. í dag hafi Vilhjálmur Egilsson verið kjörinn formaður nefndarinnar og Ágúst Einarsson varaformaður.

Enn fremur hefur verið tilkynnt að á fundi sjútvn. í gær hafi Steingrímur J. Sigfússon verið kjörinn formaður nefndarinnar og Árni R. Árnason varaformaður.