Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):
Herra forseti. Ég get verið stuttorður í svari mínu við þessari spurningu. Ég hef ekki kynnt mér inntak þessarar deilu. Málið hefur ekki komið á mitt borð. Ég lít þannig á að þetta sé málefni sem Ríkisútvarpið eigi að leysa sjálft og sé innanhúsmál þar. Það hefur ekki verið sent erindi um það til mín og ég hef ekki í hyggju að skipta mér af málinu.