Gísli S. Einarsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. samgrh. svörin. Hann boðaði það nánast að hann ætlar að mæta í september 1997 með skærin á borðann á Gilsfjarðarbrú, en ég spurði hvenær útboð eigi að fara fram og hvenær verkframkvæmd eigi að hefjast og ég vek athygli á því að það kom ekki svar við þeim spurningum.