Gilsfjarðarbrú

Mánudaginn 16. október 1995, kl. 15:32:02 (298)

1995-10-16 15:32:02# 120. lþ. 10.1 fundur 38#B Gilsfjarðarbrú# (óundirbúin fsp.), GE
[prenta uppsett í dálka]

Gísli S. Einarsson:

Herra forseti. Mér þykir slæmt ef hæstv. samgrh. svíður undan þessum orðum. Ég vil þakka fyrir að hann gaf hér fyrirheit um að brúin yrði komin 1997 og hann væntanlega mættur til að opna hana. En ég hef ekki enn fengið svör við hvenær framkvæmdin hefjist. Heimamenn og þeir sem búa í aðliggjandi byggðum að Gilsfirði telja þetta heilagt mál. Við sem vorum þingmenn Vestfjarða og Vesturlands gáfum fyrirheit um að staðið yrði við það sem lofað var og það var að hefja framkvæmdina í ár og útboð skyldi fara fram á miðju sumri og það hefur ekki staðist.