1995-11-06 15:40:00# 120. lþ.#F 28.#1. fundur. Varamenn taka þingsæti., til 15:40:19| L gert 7 11:4
[prenta uppsett í dálka]

Varamenn taka þingsæti.

[15:40]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):


Forseti las eftirfarandi bréf:

,,Þar sem Einar Oddur Kristjánsson, 3. þm. Vestf., getur ekki sinnt þingstörfum á næstunni vegna atburðanna í heimabyggð hans á Flateyri hinn 26. fyrra mánaðar, leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að Ólafur Hannibalsson blaðamaður, 1. varaþm. Sjálfstfl. í Vestf., taki sæti á Alþingi á meðan.

Þetta tilkynnist yður hér með.

Geir H. Haarde,

formaður þingflokks sjálfstæðismanna.``