[15:37]
Vilhjálmur Ingi Árnason:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. svör hans. Mér sýnist hann hafa fullan skilning á hvernig annars ágætt húsnæðiskerfi hefur verið misnotað, hvernig íbúðir hafa verið byggðar miðað við þarfir verktaka en ekki fólksins sem á að búa í þeim. Það er alvörumál því það erum við landsmenn allir sem komum til með að borga brúsann.