Katrín Fjeldsted fyrir LMR

Fimmtudaginn 16. nóvember 1995, kl. 10:35:23 (867)

1995-11-16 10:35:23# 120. lþ. 33.91 fundur 76#B Katr Fjeldst#, Forseti RA
[prenta uppsett í dálka] 33. fundur


[10:35]

Forseti (Ragnar Arnalds):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavík, Katrín Fjeldsted læknir, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Lára Margrét Ragnarsdóttir, 6. þm. Reykv.``

Kjörbréf Katrínar Fjeldsted hefur þegar verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur hins vegar ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því nú samkvæmt 2. gr. þingskapa að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.