[18:06]
Kristín Halldórsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég tek undir undrun og hneykslun hv. síðasta ræðumanns. Ég get alveg sagt það hér og nú að mér finnst koma vel til greina að hafna algjörlega þátttöku í svona starfi. Það var hins vegar mat okkar að á það skyldi reyna hvort hugur fylgdi máli og við munum að sjálfsögðu fylgjast með þessu og kanna hvort ástæða er til þess að taka þátt í starfi sem virðist ekki eiga að fara fram af meiri alvöru en kemur fram í þessu sem hv. síðasti ræðumaður var að segja.