Anna Jensdóttir fyrir GMS

Mánudaginn 27. nóvember 1995, kl. 15:03:32 (1283)

1995-11-27 15:03:32# 120. lþ. 41.91 fundur 103#B x#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur


[15:03]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hefur eftirfarandi bréf:

,,Þar sem ég vegna sérstakra anna get ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþingmaður Þjóðvaka í Reykv., Mörður Árnason íslenskufræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni. Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Jóhanna Sigurðardóttir, 13. þm. Reykv.``

Kjörbréf Marðar Árnasonar hefur verið samþykkt, en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.