Verslunarrekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Mánudaginn 27. nóvember 1995, kl. 15:37:41 (1293)

1995-11-27 15:37:41# 120. lþ. 41.5 fundur 166. mál: #A verslunarrekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar# þál., DSigf (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur


[15:37]

Drífa Sigfúsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég held að 10. þm. Reykn. hafi eitthvað misskilið orð mín. Ég ræddi ekki um að ég skildi ekki mismun á einkarekstri og ríkisrekstri. Ég nefndi að ég skildi ekki hvernig sami hv. þm. Kristján Pálsson geti bæði lagt til að ríkið dragi sig úr úr rekstrinum og sé með í rekstrinum þegar hann talar fyrir sama máli. Ég fæ ekki skilið að það sé verið að leggja til í sama málinu tvær aðskildar leiðir og tala fyrir þeim báðum samtímis, svo gott sem.