Jöfnun atkvæðisréttar

Mánudaginn 27. nóvember 1995, kl. 18:47:01 (1331)

1995-11-27 18:47:01# 120. lþ. 41.9 fundur 188. mál: #A jöfnun atkvæðisréttar# þál., VS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur


[18:47]

Valgerður Sverrisdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég stóð í þeirri meiningu að það hefði verið vegna einhverrar tregðu í Sjálfstfl. sem svo lítið gerðist í þessum málum í tíð síðustu ríkisstjórnar þar sem við efumst ekki um vilja Alþfl. í þessum efnum. Ég hélt það hefði verið einhver tregða í Sjálfstfl. sem gerði það að verkum að ekkert gerðist fyrr en það var alveg að líða að kosningum. Þá var sest niður og reynt að ná samstöðu um málin. En ekki virðist þetta hafa verið réttur skilningur hjá mér miðað við orð hv. þm.